Heimurinn minn
Allir að herma
<description>1. Hvað gerðirðu árið 2006 sem þú hafðir ekki gert áður? Eignaðist
2. Hélstu áramótaheitið og ætlarðu að strengja heit fyrir næsta ár?
Man ekki einu sinni hvort að ég var með áramótaheit fyrir nýliðið
3. Eignaðist einhverri nærri þér barn á árinu? já alveg fullt af
5. Til hvaða landa fórstu á árinu? Fór til Kaupmannahafnar í
6. Hvað langar þig að fá árið 2007 sem þig vantaði 2006? Peninga og
7. Hvaða dagsetningar frá árinu 2006 standa upp úr hjá þér? 16
mars, 27 apríl, 30 apríl og 21. maí alveg sérstaklega, líka 22 júlí
8. Hver var mikilvægasti áfanginn (eða árangurinn) sem þú náðir á
9. Hver voru stærstu mistökin hjá þér? Þetta er ekki endilega bara
10. Varstu veik eða slasaðist þú á árinu? Ég hef pottþétt fengið
einhverjar pestir á meðan að ég var að vinna á leikskolanum. Annars
var ég frekar hraust enda fékk ég alveg minn pakka þegar að ég var
11. Hvað var það skemmtilegasta sem þú keyptir? Fyrstu fötin hennar
Birtu sem að ég verslaði í Fields. Ég var engan veginn að trúa því
að ég myndi eignast svona litla manneskju sem að myndi passa í
12. Gerðist eitthvað hjá þér eða vinum þínum sem er þess virði að
13. Hegðun hverra gerði þig sorgmædda eða reiða? Fæst orð bera
15. Yfir hverju varstu spennt? Að bíða eftir henni og athuga
hvernig hún liti út og hverjum hún líktist. Einnig hvort að nafnið
16. Hvaða lag/plata mun ævinlega minna þig á árið 2006? ég er undir
þínum áhrifum með Sálinni. Svona smá hormónaflipp í lok
Grennri eða feitari? Haha pottþétt mjórri enda einu barni færra í
Ríkari eða fátækari? Eftir því hvernig litið er á það. Fátækari af
18. Í hvað hefðirðu viljað eyða meiri tíma? Hef ekkert til að sjá
19. Í hvað hefðirðu viljað eyða minni tíma? Hanga langt fram í nótt
20. Hvernig ætlarðu að eyða jólunum? Ehhh jólin eru búin og ég
eyddi þeim í faðmi fjölskyldunnar. Hafði það ótrúlega gott bara.
Hversu mörg einnar nætur gaman? fyndin spurning. Ég get ekki séð
hvernig ég hefði átt að hafa tíma í það. Líka ekkert sérlega
24. Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Grey’s anatomy, Little Britain,
Vinir, prison Break, 24 og ekki sist Fyrstu skrefin (varð að vísu
25. Hatarðu einhvern núna sem þú hataðir ekki í fyrra? Nei ég stend
26. Hvað var besta bókin sem þú last á árinu? Sennilega Konur með
einn í útvíkkun fá enga samúð en það er aðallega óléttutengt. Svo
eru rosalega góðar bækurnar Da Vinci lykilinn og englar og Djöflar.
27. Hver var mesta tónlistaruppgötvunin? Engin sem að ég man eftir.
29. Hvað langaði þig í og fékkst ekki? Missti af fallegum kjól á
30. Uppáhaldsbíómyndin á árinu? Sú sem að hafði mest áhrif á mig er
31. Hvað gerðirðu á afmælinu þínu og hversu gömul varðstu? Ég varð
24. Ég fór út að borða í hádeginu og svo var þetta allt bara
normal. Nokkrum dögum seinna bauð ég stelpunum í rosalega góðan
32. Hvað hefði gert árið enn ánægjulegra? Gott veður í sumar. Þetta
33. Hver var tískan hjá þér á árinu? tískan hjá mér á árinu
samanstóð af buxum sem að voru víðar í mittið, bolir sem að náðu
yfir sífellt stækkandi bumbuna og svo flíspeysur eina eða tvær því
að mér var alltaf kalt. Þetta var nota bene allt í ljótum litum.
Svo for aðeins að rofa til með sumrinu og þá var það yfirleitt ljót
föt líka og með einum og einum ælublett. Helstu fylgihlutir voru
34. Hvað hjálpaði þér við að halda geðheilsunni? Mamma og Erla
36. Hvaða málefni hafði mest áhrif á þig á árinu? Þótt að það hafi
ekki borið mikið á góma þá finnst mér sorglegt að foreldrum sé ekki
gert kleift að vera lengi í fæðingarorlofi til að kynnast börnunum
37. Hverra saknarðu? Vina minna sem að búa flestir ekki í sama
38. Af nýju fólki sem þú kynntist á árinu, hver stendur uppúr?
39. Hvað lærðurðu á árinu? Að það er rosalega erfitt að læra að
gefa brjóst en þegar að það er komið á hreint er það bara
yndislegt!
Annáll ársins 2007
     nýjasta trendið og auðvitað er ég með í því. Þessi listi er
     eins og gefur að skilja aðeins takmarkaður og kannski ekki
Janúar: Árið hjá mér byrjaði í borgarnesi. Ég var nýbúin að komast
að því að barnið sem að ég bar undir belti væri stúlka. Stúlka sem
að svaf í sónar og var ekkert að taka þátt í þessari vitleysu og
þegar að við foreldrar hennar ætluðum að kíkja á hana þá bara
nennti hún þessu ekki og setti bara hendurnar fyrir eyrun. Mjög
sætt og krúttlegt allt saman. Þetta varð til þess að við fengum
alveg hrikalega asnalegar myndir úr sónar og hugsihugs hvaðan ætli
hún hafi það. Þetta voru sömuleiðis fyrstu áramótin min í langan
tíma þar sem að ég var ekki undir áhrifum. Meðganga gekk annars
bara mjög vel og þarna var farið að sjást að ég gengi með barn
undir belti greinilega. Nýja árinu var svo fagnað með góðum hópi
vina á Búðarkletti heitnum. Birta sparkaði svo í mig og lét mig
vita að núna væri kominn tími til að fara heim. Einnig fór ég á
fæðingarnámskeið í þessum mánuði fyrir sjálfstæðar mæður. Var að
minnast þess núna við vinkonu mína þegar að ég sá að fyrstu dagana
eftir fæðingu þyrfti barnið að fá að drekka á 2 tíma fresti. Enginn
hafði sagt mér það áður og þarna var of seint að klemma saman
Febrúar: Í byrjun febrúar fór ég í ferð til Danmerkur í þeim
tilgangi að versla föt á frumburðinn. Það gekk alveg vonum framar
og ég gerði góða ferð þarna út og kom heim klyfjuð. Áður en að ég
kom út þá hafði Einar fengið lánaða rosalega flotta íbúð þarna úti
fyrir okkur og við lékum hjón í 6 daga. Helgi fékk þau forréttindi
að rölta ALLT Fields með mér nokkra hringi og við fengum rosalega
falleg föt á litlu snúlluna. Að vísu var hún ekkert að sýna pabba
sínum sig of mikið í ferðinni. Þarna ákváðum við líka fallega
nafnið hennar yfir hádegisverði. Birta bara alveg út í loftið og af
því að okkur þótti það nafn fallegt, og svo Guðrún eftir ömmum
Mars: Það var mánuðurinn sem að Birta hélt að hún ætti að koma.
Eitt kvöldið fékk ég einhverja verki og seyðing og fór þá á
fæðingardeildina þar sem að kom í ljós að ég var komin með
einhverja samdrætti og því nauðsynlegt að sprauta mig niður og ég
þurfi að sofa eina nótt á spítalanum. Með þessu þá þurfti ég síðan
að minnka við mig vinnu og fara bara að vinna hálfan daginn sem að
var mjög gott enda var maður orðinn þreyttur og ekki vildi maður
Apríl: Þessa páskana kom ég öllum á óvart og tók mesta
hreiðurgerðakast sem að fólk hefur séð. Þvoði öll barnafötin og það
var nokkurn veginn allt tilbúið fyrir hana Birtu mína. Guðný kom
heim eftir að hafa verið á Indlandi í nokkra mánuði. Þetta var líka
fæðingarmánuður “tvíbura” hennar Birtu. Hann Hinrik Valur kom í
heiminn þann 30. apríl og eins og mamma sagði að þegar að hann
fæddist að þá var hann fegursta barn i heimi. Eftir lýsinguna
hennar Erlu á fæðingunni ákvað ég svo að ég ætlaði helst að sleppa
því að fæða en það kom síðar í ljós að ég lét verða af því. Þarna
hætti ég sömuleiðis að vinna og það var erfitt að segja bless við
allar stelpurnar og börnin. Maður tók alveg ástfóstri við nokkur
börn þarna. Eignaðist góðar vinkonur þarna sem að ég er því miður
ekki búin að hitta neitt síðan að ég hætti. En það er alltaf á
dagskrá. Þarna skilaði ég líka af mér heittelskuðu íbúð minni á
Reynimel 76. væri meira en til í að eiga þá íbúð. Sakna enn
æðislegu sturtunnar þaðan. Þarna var að vísu eitthvað smá vesen á
barninu líka. Birta gat einhvern veginn aldrei haldið sig á sama
stað og tókst aldrei að koma sér í rétta stöðu. Eftir að ég fór í
vaxtasónar kom í ljós að hún var sitjandi og ég átti að fara í
vendingu. Þegar að það kom svo loksins að mér og ég komin á bekk
hjá fæðingarlækninum þá kom hún öllum á óvart með því að vera búin
að snúa sér við eins og það væri ekkert mál. Ég fór því skjálfandi
út af fæðingardeild eftir að hafa fengið Bricanyl að óþörfu. Fékk
Maí: Þarna kom mánuðurinn sem að ég hafði beðið eftir í marga
mánuði. Þarna var ég flutt í borgarnes til hennar mömmu og beið
svona hérumbil eftir því að eignast þetta barn. Ég var orðin
jafnstór og meðalstórt fjölbýlishús þegar að hér er komið við sögu.
Eitthvað illa gekk svo að komast að í mæðraskoðun hérna og því
þurfti ég að fara í mæðraskoðun út á Skaga þar sem að ég fékk þann
vafasama heiður að vera með skrýtnustu bumbu sem að Sara ljósa
hefði séð. Mér leið vel og það var ekki að sjá á mér að ég væri
komin á steypirinn nema þessa risakúlu sem að var framan á mér.
Dagurinn rann upp og fleiri dagar í viðbót. Helgi kom svo heim 20
maí og sama dag fór ég upp á spítala af því að ég hélt að vatnið
væri að fara. Tobbi bróðir var alls ekki sáttur við allt þetta
vesen að ég ætlaði að dirfast að eiga á hans degi. Það kom þó ekki
til þess. Ég fór ófáa hringi í kringum SHA og daginn eftir að hafa
sofið eina nótt á spítalanum vaknaði ég og þá var allt farið af
stað. Fæðing Birtu gekk eins og best var á kosið og ég hefði ekki
viljað hafa neitt öðruvísi. Það að fæða var allt öðruvísi en ég
hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér og það að fá hana í fangið
var æðislegt. Ég og Helgi alveg dýrkuðum hana. Við tók góð tæp
vikusængurlega þar sem að ég hafði það gott með fjarstýringu í
einni hendi og barn á hinni. Var að vísu erfitt að horfa á eftir
Helga út aftur og vera síðan svo ein en það tókst. Brjóstagjöfin
gekk eitthvað brösulega til að byrja með en í dag er hún enn á
Júní: þessi mánuður flaug einhvern veginn áfram. Pabbi og Jóna
lentu í árekstri í göngunum í mánaðarbyrjun þegar að þau voru á
leiðinni hingað að heimsækja okkur mæðgur. Það hefur pottþétt
einhver engill verið að fylgjast með þeim þegar að þau voru að fara
þarna í gegnum því að þau sluppu með skrámur. Birta fór í pössun í
fyrsta skipti til ömmu sinnar og afa í Rangárseli. Á meðan þá fór
ég í brúðkaup til æskuvinkonu minnar hennar Hófi. Þarna fór ég
síðan í ferð með Birtu 6 vikna gamla á Vestfirði þar sem að við
vorum í sumarbústað í Tungudal og við stoppðum líka í nokkra daga á
Júlí: þennan mánuð þá skírði ég hana Birtu. Guðrúnarnafnið hennar
hafði verið haldið leyndu þangað til þarna og ég held að allir hafi
verið ánægðir með það. Hún fékk nafnið sitt þann 22. júlí við mjög
fallega athöfn á Borg á Mýrum. Við fengum mjög gott veður eða með
betri veðrum sumarsins. Í athöfnina mættu svo nánustu ættingjar
mínir og Helga. Grétar, maðurinn hennar Erlu Bjarka bar hitann og
þungann af veitingunum í veislunni og svo bökuðu fleiri ættingjar
kökur og sona. Mjög góður dagur í minningunni. Einnig fékk ég
aðeins þarna að fá smá tíma með sjálfri mér á meðan að Helgi var
heima og lærði það að ég kann voðalega lítið en að vera með
Ágúst: Ég og mamma byrjuðum þennan mánuð á því að vera hústökufólk.
Við fengum lánaðan sumarbústaðinn Greni yfir verslunarmannahelgina
og yfirgáfum hann ekki fyrr en eftir 3 vikur. Mjög góður tími. Bara
September: Ég fann mína köllun í hundraðasta skipti og ákvað að það
væri kannski að fara í viðskiptagreinar. Ég stóð við það og fór í 3
áfanga við Versló eða bókfærslu, markaðsfræði og fjármál. Einnig
fórum við mæðgur að stunda heilsurækt. Ég fór í alveg 6 tíma í
ræktina. Fékk hasperur dauðans. Það hefur að vísu orðið eitthvað
lát á þessu núna því að bæði námið og það að sinna barninu varð
rosalega mikil vinna. Svo fórum ég og Birta líka í ungbarnasund.
Október: Afmælismánuðurinn minn. Á þessu ári varð ég alveg háöldruð
eða alveg 24 ára gömul. Ber samt aldurinn rosalega vel. Hélt smá
boð bara fyrir vinkonurnar heima hjá Erlu. Helgi kom og kíkti svo á
Desember: þessi mánuður leið rosalega hratt. Ég fór í próf í gamla
skólanum mínum og það var rosalega skrýtið. Ég náði prófunum með
meðaleinkunnina 7 og var ánægð með það miðað við að þetta var bara
svona test til að athuga hvort að ég gæti þetta. Ég náði að senda
út 50 jólakort með mynd af erfingjanum og hafði ekki sent kort í
mörg ár. Svo komu jólin og Birta fékk alveg mest af pökkum. Maður
var alveg búinn á því eftir að hafa opnað þetta allt. Svo fórum við
til reykjavíkur á milli jóla og nýárs. Þau feðgin fengu að hafa
margar góðar stundir saman. Hún fór í jólaboð og á 2 jólaböll. Á
gamlársdag vorum við svo í mat hjá pabba í Ísalindinni. Við vorum
svo á miðnætti heima hjá henni Erlu vinkonu þar sem að börnin fengu
að horfa á flugeldana og þótti í raun ekkert koma til þeirra. Nýja
árið var svo kvatt með því að spila trivial pursuit. Getur nokkuð
verið að ég sé að verða gömul eða hvað? Áramótaheitið mitt er
leyndó og ég hef lært það að oft er gott að skrifa sig frá
hlutunum. Annars held eg að þetta sé alltof langt og fólk í raun
varla að lesa síðustu línurnar. Þetta blogg ætti því að vera nog
fyrir næstu 2 mánuði. Mjög gott að gera svona annála þótt að minn
Veit að þetta er gamalt en samt svo skemmtilegt
14. Hefur þig einhvern tíma langað til að segja mér eitthvað en
15. Ætlarðu að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
Myspace
<description>Af því að ég nenni ekki að læra þá er ég að búa til svona myspace
kræst
<description>Já nú er fokið í flest skjól. Ég er orðin einu ári eldri. Er þetta
bara ekki búið núna?
Það ótrúlega gerist!
<description>Ég er ennþá ýkt fúl yfir því að hafa ekki verið valin ungfrú Halló
í hallærispartýinu hennar Guðnýjar. Erla var valin ungfrú Halló
árið 96 og það var því borðleggjandi að ég yrði valin næst því að
Guðny var ekki kjörgeng því að hún var gestgjafi. Ég mætti í þessum
forláta hlébarðakjól, fjólublárri bundinnu peysu, bleikum netsokkum
temmilega ógeðslega augnmálningu en allt kom fyrir ekki. Ég gefst
þó ekki upp og bíð eftir næsta hallærispartýi. Annars er þetta
nokkuð góð frammistaða miðað við að hafa verið að reyna að koma sér
út á notime eftir að hafa fengið pössun fyrir dóttirina og gefa
brjóst og hugga stelpuna. Það einhvern veginn tekst aldrei að vera
á réttum tíma þegar að maður er með barn. Ég bara veit ekki hvort
En góð frammistaða hjá Hlynsa sem að vann það að vera Herra Halló í
Það sem að ég hélt að myndi aldrei gerast, gerðist síðastliðinn
miðvikudag. Þetta var eins og hver annar dagur þessi miðvikudagur
fyrir utan eitt smáatriði. Það fraus í helvíti, fílar urðu
fjólubláir og ég, Heiða Salvarsdóttir fór í ræktina!! Ég tók meira
að segja einn hring, án alls gríns og ég komst heim heilu og
höldnu. Ég ætla meira að segja að halda áfram að gera þetta því að
þetta er ekki jafn slæmt og ég hafði haldið. Næsta skref er því að
Ég hef greinilega farið veggmegin fram úr alla vikuna því að ég var
eitthvað svo klikkuð að ég ákvað að mín köllun í lífinu núna þessa
viku væri það að fara í viðskiptafræði. Ákvað það klukkan 4 á
þriðjudegi og klst síðar var ég búin að skrá mig í fjarnám í
versló. Bara svona að halda manni við efnið á meðan að maður er í
barneignarfríi. Fór að hafa einhverjar áhyggjur af því að ég hefði
kannski minni tíma fyrir Birtu en það er kominn tími til þess að
drulla sér upp af rassinum. Þeir áfangar sem að ég fer í eru
bókfærsla, fjármál og markaðsfræði. Það kemur svo bara í ljós í
desember hvernig ég stend mig. Námið byrjar allavega bara 12
Annars fórum við Birta líka í ungbarnasund í gær og það var æði.
Aðalbjörg frænka, uppáhalds frænka hennar birtu kom með okkur og
svo ákváðu Erla og Hinrik Valur með okkur og því var þetta alveg
rosa gaman. Birta alveg elskaði að vera í vatninu og geta svamlað
um og það var ekki að sjá neitt á henni annað en að þetta væri bara
skemmtilegt fyrir hana. Að vísu kom eitthvað smá kvart i lokin því
að ungfrúin var orðin eitthvað þreytt því að hún var líka búin að
sofa svo lítið yfir daginn. Og það er ekki að spyrja að því að hún
En þetta er komið ágætt, ég tek við heillaóskum í kommentum hér
Hugleiðingar
<description>Ég hef komist að því að ég og dóttir mín Birta erum ekkert alltaf
sammála um hvernig hlutirnir eiga að vera. Við höfum lent upp á
1. Birta telur að það sé rosalega sniðugt að fara á fætur áður en
að það er komin birta og fuglar farnir að syngja. Móðirin er nota
bene ekki sammála. Hvað varð eiginlega um barnið sem að svaf af sér
alla nóttina hér áður eins og draugur. Þetta hefur reyndar bara
2. Birta verður alltaf svöng á sama tíma og móðirin. Það vill bara
svo heppilega til að ég hef töluvert meiri þolinmæði en hún þegar
að kemur að mat (ég banna Halldóru og Fanney að kommenta á þennnan
lið!!). Munurinn á okkur er samt sá að ég græt ekki þegar að ég fæ
Og úr því að ég er svona hérum bil alltaf að horfa á sjónvarpið þá
hefur mér ekki tekist að fara fram hjá KFC auglýsingunum sem að eru
að meðaltali 30 held ég þegar að Rockstar er!! Og ekkert smá
asnalegar auglýsingar. Ef svo stórfurðulega vildi til að ég færi að
fara inn í musteri World Class sem að er álíka líklegt og ég færi
að hætta að drekka kók (mun aldrei gerast sko) þá færi ég ekki
beinustu leið á KFC held ég. Aldrei samt að segja aldrei. En hvað
er svo með gaurinn sem að fer svo með KFC til hjartveikrar ömmu
sinnar á elliheimili. Viltu bara ekki fá jarðaför með þessu
Annars er ég búin að vera í rvk síðastliðna viku og það var bara
voða rólegt. Fékk pössun fyrir Birtu og við mæðurnar og Guðný sem á
ekkert barn að mér vitandi forum á Pirates of the Caribbean. Ekkert
sma góð mynd en það virðist greinilega vera í tísku að hafa
framhald á öllu. Ég er greinilega eitthvað ennþá bitur yfir 24 og
Annars fórum við mæðgur saman á menningarnott með mikið af góðu
fólki. Við MK stelpur hittumst heima hjá henni erlu og borðuðum
salsa kjúkling og eina bestu frönsku súkkulaðiköku sem að ég hef
fengið. Bara æði hún Agnes þegar að matur er annars vegar. Svo
skelltum við okkur í bæinn bara. Birtan svaf allan tímann og
rumskaði varla á meðan að ég plokkaði af henni fötin þegar að við
komum heim. Og ég held að það hafi verið töluvert skárri
flugeldasýning árin á undan. Greinilega flugeldasýningin komin í
einhvern sparigír. Svo tók smátíma að koma sér úr bænum því að það
var svo mikið af fólki að ég hélt að við gætum aldrei komist
Svo fórum við mæðgur saman til hans Hróðmars hjartalæknis á
mánudaginn. Birta var ekki alveg að kunna við að láta skoða sig
svona og lét alveg öllum illum látum og leyfði honum að heyra hvað
svo. En niðurstöðurnar eru allavega þær að það er ekkert að
hjartanu hennar Birtu og mitt hjarta er alveg eins og það var áður
en að ég varð ólétt að henni. Ekkert sem að lekur eða neitt. Þannig
Annars langar mig ekkert smá að setja inn mynd af henni Birtu hérna
Blessuð
dóttir mín er meira að segja komin í heiminn eftir frábæra fæðingu
eða ef svo mætti orða það. Ég væri allavega til í að gera það eftir
því að það er í raun þegar að maður hugsar tilbaka ekkert betra en
mánuðir og stelpan mín er í einu orði sagt æðisleg. Sefur sína 8
tíma á nóttunni og við erum algjörar svefnpurrkur og vöknum á
hádegi báðar. Svo finnst henni alltaf svo gaman að sjá mig á
morgnana þegar að hún vaknar. Svo talar hún alveg heilu og hálfa
dagana. Mállýska sem að ég skil því miður ekki en samanstendur að
elskar að borða. Það að bíða eftir mat fyrir hana er í raun
óbærilegt fyrir hana. Þá koma líka bara öskur og það mjög hátt og
það gæti vakið heilt hverfi. Svo er hún líka löng og mjó eins og
Birta er bara alveg út i loftið og á vel við hana því að maður sá
það á henni um leið og hún fæddist. Hún er bara algjör stjarna og
sólargeisli. Guðrúnarnafnið fær hún aðallega út frá ömmum sínum sem
Settur dagur á síðasta föstudag og nei ekkert að gerast..
hérna inn því að það kommentaði ekki neinn hjá mér síðast!! En úr
því að ég hef ekkert betra að gera þá skellir maður sér á þetta.
Jæja þá er dagurinn sem að maður er búinn að bíða eftir loksins
kominn og farinn:lol: Sem þýðir það að það megi gera ráð fyrir því
að ég eigi 12 daga eftir ef að þetta kemur ekki fyrr. Ég er farin
að skjóta á að þetta verði á Eurovision. Það er allt orðið ready
held ég og það er bara að bíða. Ég væri að blekkja sjálfa mig ef að
ég segði að þessi bið væri ekkert mál en þetta er samt ekkert svo
slæmt. Fint að eiga bara rólega daga og borða, vera með tærnar upp
í loftið og koma mér fyrir:haha: Hef verið dugleg að fara út fyrir
dyrnar og skellti mér meira að segja á tjúttið í gær í korter þar
sem að gamlir starfsmenn KB voru saman komnir. Það urðu allir
frekar hissa þegar að ég sagði þeim að ég hefði átt að eiga í gær
og töluðu aðallega um hvað maður væri nettur. Sem að er í algjörri
mótsögn við mömmu sem að sagði í gær að ég væri í laginu eins og
fjall þegar að ég labbaði fram hjá henni í náttslopp:) Svo var það
bara rúntur með Fannari, Kristín, Heiðrún og Lóu til alveg 2 um
ætluðu að hittast í kvöld. Vildi að ég væri með ykkur en ég þori
bara að bulla. Endilega verið dugleg að láta vita af ykkur. Bæði
Komin í sveitina
sumar. Kom hingað á síðasta föstudag. Það var smá pressa að tæma
Reynimelinn en það tókst undir lokin. Af hverju heldur maður Anna
sá að vísu að mestu um þrifin en ég var eitthvað svo þung á mér
þegar að það átti að fara að þrífa :lol: Siðustu dagar hérna hafa
verið rosalega góðir. Fór í Sauðhúsaskóg um helgina og það var æði.
föstudag svo að kveðja gellurnar og börnin. Það var næstum því eins
og maður væri bara að fara í smá frí. Maður saknar samt leikskólans
bílnum. Þannig að síðustu vikuna í rvk var maður bara á
bílaleigubíl en engar áhyggjur MU er kominn aftur á göturnar og
síðustu viku þegar að ég mætti í vaxtarsónar ásamt Guðný "frænku".
Þá reyndist stelpan vera sitjandi og með svona fínt krosslagðar
lappir. ljósan sem að setti mig í sónar vildi setja mig strax í
vendingu en aldrei þessu vant var ég búin að borða morgunmat :) Því
var ákveðinn tími í vendingu daginn eftir um morguninn sem að ég
mætti svo í. Ég fékk þetta skemmtilega Bricanyl og leið rosalega
illa af því. Svo þegar að ég var komin upp á borð hjá lækninum þá
að það er lítill prakkari innanborðs. Ég hélt fyrst að þetta væri
fallega strákinn sinn á síðasta sunnudag. Hann lét soleiðis hafa
fyrir sér og kom út með miklu showi. Habbý eignaðist svo litla
prinsessu 2 maí og hún er alveg rosalega falleg. Svo átti Lotta
stráklinginn sinn 30 apríl líka alveg eins og Gerða sagði. Þannig
kominn í fæðingarorlof. Það er lítið komið inn á hana en það gerist
vonandi fljótlega. Aldrei að vita nema að maður setji inn
bumbumyndir inn á hana en býst við því að það verði önnur fyrirsæta
þarna heldur en ég. Síðan er læst en þeir sem að vilja fá
leyniorðið endilega sendið póst þá á netfangið sem að ég gef upp á
síðunni. Það er allavega kominn hlekkur á síðuna undir litlu
Hæ hæ hæ
æðislegt að fá hana. Ég, Agnes, Sigrún, Erla og litlu bumbubúarnir
skelltum okkar á flugvöllinn að ná í hana. Henni brá rosalega því
að hún átti bara von á mér en ekki allri þessari strollu. Svo brá
henni líka aðeins þegar að hún sá stærðina á okkur Erlu en hún er
eina hjá Rakel ýr og svo aðra hjá Elísu frænku. Ég er bara svona
hrikalega veisliglöð og elska svona veislur ólíkt einhverjum sem að
ég þekki. Eg var aðallega bara heima hjá mér því að ég nennti
hreinlega ekki að fara út. Klæðnaðurinn yfir páskana stóð aðallega
viðþolslaus í því að þrífa ALLT sem ég komst með hendurnar í.
Föstudagurinn langi fór aðallega í það að þvo öll föt af
prinsessunni, ásamt sængum, teppum, handklæðum og ég veit ekki
hvað. Ég hélt að þetta væri ekki neitt af fötum sem að ég væri
komin með en það reyndist ekki rétt hjá mér því að þetta var
rosalega mikið. Síðan tók ég herbergin hjá strákunum og þurfti
nánast að þrífa í kringum þá. Mamma var eitthvað að reyna að
stremma mig af og var líka í því að þrífa og tognaði svo í baki a
þar sem að ég flyt í næstu viku í nesið mitt. Það virðist að vísu
eitthvað standa á sér að ég nenni að setja í kassa og er búin að fá
liðsauka frá henni Guðný. Vinnan klárast á morgun og það verður
hugsanlega ekkert auðvelt að kveðja litlu dúllurnar. En maður er
víst að fara að koma með eina sjálfur. Skilst samt á Erlu og Habbý
að þær ætli að fá að vera á undan mér og ég ætla að leyfa þeim það
:haha: Annars eru bara 3 vikur þangað til að skvísan á að mæta á
svæðið eftir 3 vikur. Barnalandssíða verður sett á laggirnar þegar
að það fer að hægjast um hjá manni. Skvísan tók loksins upp á því
að skorða sig, mér til ómældrar gleði. Tókst síðan líka að fá
vaxtarsónar á í næstu viku til að tékka á stærðinni á henni. Ljósan
heldur að þetta barn verði hugsanlega bara 13 merkur miðað við
kíkja við en enginn kommentar svo. Ég hljóma alveg eins og síðasta
nýjir tímar
Mars
laugardagskvöldi og það er bara nokkuð ágætt finnst mér. nokkrar
spólur sem að bíða eftir að vera horft á og svona úr því að maður
samanstóð af mér, Ósk, Arndísi og Söndru. Ég bjó til
kjúklingasalatið hennar Hrefnu sem að ég stal uppskriftinni að í
einhverjum H6 hittingi einhvern tímann. Klikkar allavega aldrei.
Arndís og Sandra sáu svo aðallega um það að drekka og sona og gerðu
það með prýði og fóru vel kenndar héðan af Reynimelnum eða ég
skutlaði þeim þ.e. Alla þá helgi leið mér eins og ég væri þunn sem
að ég átti alls ekki skilið því að ég hafði ekkert gert til að
verðskulda það. Á sunnudeginum eftir það hélt ég að ég væri við
dauðans dyr gjörsamlega þar sem að ég var með krónískan höfuðverk.
Læknavaktin var það, þar sem að ég var greind með sýkingu í ennis
og kinnholum og fékk vikuskammt af pensilíni, nammi namm eða hitt
Gígju ljósu sem að skikkaði mig til að vera heima þann dag og hvíla
mig út af því að ég var eitthvað að kvarta undan samdráttum og
túrverkjum. Svo komumst við að því að daman mín liggur í þverlegu á
meðan að hún ætti að vera að fikra sig í höfuðstöðu. Um kvöldið
þægilegt:^) Þannig að ég hringdi upp á fæðingardeild og var látin
koma. Á leiðinni inn rakst ég á einhverjar hjúkkur sem að spurðu
mig voða indælislega hvort að ég væri nokkuð komin til að fæða, ég
hélt nú ekki þar sem að ég á ennþá nokkrar vikur eftir:^) Ég var
einhver erting í leginu en samt engin útvíkkun sem betur fer. Fékk
síðan sprautu við samdráttunum. Þannig að ég þurfti að gista þarna
yfir eina nótt vegna hótana um fyrirburafæðingu. Þannig að maður er
bara búinn að liggja með tærnar í loftið meirihluta vikunnar og er
farið að leiðast smá. Maður verður svo paranoid að það er alveg
ótrúlegt en það er allt í lagi núna. Líka búin að fá tilmæli frá
henni Erlu bumbu að hún eigi víst að vera á undan. Svo er bara
spurning um hvort að maður þurfi að minnka við sig vinnu eða hvað
Einsa. Nánast ónotuð og svaka flott. Hún var ekki nógu flókin fyrir
tækninördið en nógu flókin fyrir mig. En videóið mitt bíður.
febrúar að verða búinn
eitthvað blogg á því að afsaka það ekki að það sé svo langt síðan
gamla á fimmtudaginn sem að færði mér góðar fréttir. Hann ætlar að
kaupa íbúð fyrir mig og litlu skvísu sem að ég myndi leigja af
honum Maður vissi ekki hvort að maður ætti að hlæja eða gráta. En
það er alveg á hreinu að ég á besta pabba í heimi og þið megið ekki
eiga hann því að ég á hann. Þannig að núna er á stefnunni að láta
sig dreyma um fallegar íbúðir og það er ekkert smá mikið til af
fallegum íbúðum á sölu núna. Það er allavega fullt af áhyggjum létt
af manni með þessu og ég er líklega með besta leigusala sem að hægt
er að hafa og öruggt húsnæði í Reykjavík að sjálfsögðu. Þá gæti
stækka rosalega mikið þessa dagana og er farin að taka frekar mikið
pláss með viðeigandi spörkum í rifbeinum. Markmið mitt næst þegar
að ég verð ólétt (sem að verður þegar að ég verð komin með mann:!:)
er að láta kippa nokkrum rifbeinum út og fá þvaglegg:haha: Það er
samt margt verra en að ganga með barn og maður má víst vera heppin
hennar guðnýjar vinkonu. Henni þótti þetta dáldið mikil frjósemi
hjá einum vinkonuhóp þar sem að ég og Erla erum báðar núna í skoðun
hjá henni:P Hún bað allavega kærlega að heilsa þér Guðný mín. Hún
var reyndar vond við mig og stakk mig því að henni þótti ég fullföl
og ástæðan er sú að ég er núna 99 í járni sem að ætti að vera um
110. Ég fór því í Heilsuhúsið eftir vinnu og keypti mér fljótandi
járn. Maður finnur ekki bragðið einu sinni af því þegar að maður
drekkur það með trópí. Einn poki er eins og 4 kg af brokkolí eða
eitthvað álíka. Svo lenti ég á besta sölumanni ever og keypti líka
Með barni af þessari konu og get því kannski farið að taka allt í
finnst það leiðinlegt geta kvartað í kommentum:haha: Líf mitt er
leikskólagellunum þar sem að maður fær að hitta Dísu skvísu sem að
ég er ekki búin að hitta held ég á nýju ári. Ekki það að það sé
nýtt blogg!
reglulega skemmtilegt. Það skemmtilegasta var líklega að fá að fara
á fæðingardeildina og skoða þar. að vísu varð maður smá skelkaður
þegar að maður heyrði öskur fram á gang en þetta er víst partur af
æðisleg og mikið gert. Ég flaug út á miðvikudegi og Einsi sótti mig
á Kastrup. Ég hafði farið ogeðslega sæt út en var fljót að draga
upp stóru nike úlpuna mína þegar að ég sá vetrarríkið þarna í dk.
Ég og einsi byrjuðum á því að leggja okkur í fínu íbúðinni sem að
vinkona hans Einsa lánaði okkur. Svo var farið á fisketorvet en ég
var ekki alveg til í að fara í það strax að versla og líka frekar
skrýtin tilfinning fyrst að kaupa lítil barnaföt á ófætt barnið
manns. Buðum svo Helga í mat um kvöldið í alveg geggjað góðan
loksins vaknaði yfir á strikið þar sem að ég eyddi 2 tímum í HM. Ég
vil meina að ég hafi verið svona lengi af því að ég villtist þarna
inni því að það er allt svo stórt þarna inni og tekur tíma að máta
þegar að maður er aðeins stærri en vanalega. Síðan fórum ég og
Einsi með henni Líney á Jensens og ég fékk loksins mína
heittelskuðu nautasteik. Kvöldinu lauk svo með alltof spennandi 24
Fields með Helga og ég held að við höfum verið 5 tíma í allt þarna
inni með pásum :D Það var allavega rosalega mikið keypt og vá hvað
ég var komið með mikið ógeð á bleikum fötum og sona undir lokin var
maður farinn að kippa fötum úr strákadeildinni. Svo um kvöldið var
það heimsókn til gumma og Ingibjargar þar sem að ég og Einar stóðum
á kínverskum stað, danskt bíó á Walk the Line sem að er ein besta
mynd sem að ég hef séð lengi, pælingar í nöfnum á litla stúlku og
Annars er lítið annað að frétta af manni nema það að í dag eru 3
mánuðir í litlu skvísu. Vonandi ekki mikið meira. Þrátt fyrir mikil
mótmæli frá nokkrum borgnesingum þá mun ég að ölllum líkindum eiga
út á skaga eftir að hafa skoðað deildina hjá þeim. Ekkert smá flott
deild og mikið huggulegra heldur en í rvk. Ég fæddist allavega út á
þvi að maður sé óléttur sem að er kannski ekkert skrýtið því að
þetta er kannski ekkert stærsta kúla ever en fer stækkandi og maður
er ekkert ennþá farinn að kjaga sem betur fer. Forvitnum er
velkomið að kíkja á mann og aldrei að vita nema að maður setji inn