jæja fullt búið að gerast síðan að ég skrifaði síðast.
Ég er búin að ljúka fæðingarfræðslunámskeiði takk fyrir! alveg
reglulega skemmtilegt. Það skemmtilegasta var líklega að fá að fara
á fæðingardeildina og skoða þar. að vísu varð maður smá skelkaður
þegar að maður heyrði öskur fram á gang en þetta er víst partur af
programminu hjá sumum
svo er nýlega afstaðin ferð til Danmerkur sem að var alveg
æðisleg og mikið gert. Ég flaug út á miðvikudegi og Einsi sótti mig
á Kastrup. Ég hafði farið ogeðslega sæt út en var fljót að draga
upp stóru nike úlpuna mína þegar að ég sá vetrarríkið þarna í dk.
Ég og einsi byrjuðum á því að leggja okkur í fínu íbúðinni sem að
vinkona hans Einsa lánaði okkur. Svo var farið á fisketorvet en ég
var ekki alveg til í að fara í það strax að versla og líka frekar
skrýtin tilfinning fyrst að kaupa lítil barnaföt á ófætt barnið
manns. Buðum svo Helga í mat um kvöldið í alveg geggjað góðan
pastarétt sem að ég og Einar kokkuðum.
Á fimmtudeginum tókst mér að labba af sjálfsdáðum þegar að ég
loksins vaknaði yfir á strikið þar sem að ég eyddi 2 tímum í HM. Ég
vil meina að ég hafi verið svona lengi af því að ég villtist þarna
inni því að það er allt svo stórt þarna inni og tekur tíma að máta
þegar að maður er aðeins stærri en vanalega. Síðan fórum ég og
Einsi með henni Líney á Jensens og ég fékk loksins mína
heittelskuðu nautasteik. Kvöldinu lauk svo með alltof spennandi 24
þáttum!
Föstudagurinn fór svo í það að þræða allar barnafataverslanir í
Fields með Helga og ég held að við höfum verið 5 tíma í allt þarna
inni með pásum
Það var allavega rosalega mikið keypt og vá hvað
ég var komið með mikið ógeð á bleikum fötum og sona undir lokin var
maður farinn að kippa fötum úr strákadeildinni. Svo um kvöldið var
það heimsókn til gumma og Ingibjargar þar sem að ég og Einar stóðum
uppi sem sigurvegarar í sequence!
Helgin var annars voðalega chilluð og það var farið út að borða
á kínverskum stað, danskt bíó á Walk the Line sem að er ein besta
mynd sem að ég hef séð lengi, pælingar í nöfnum á litla stúlku og
ofboðslega mikið langþráð chill.
Danmörk fær allavega fullt hús stiga fyrir þessa ferð allavega.
Annars er lítið annað að frétta af manni nema það að í dag eru 3
mánuðir í litlu skvísu. Vonandi ekki mikið meira. Þrátt fyrir mikil
mótmæli frá nokkrum borgnesingum þá mun ég að ölllum líkindum eiga
út á skaga eftir að hafa skoðað deildina hjá þeim. Ekkert smá flott
deild og mikið huggulegra heldur en í rvk. Ég fæddist allavega út á
skaga og vil ekki meina að ég sé alvarlega skemmd eftir það
Foreldrar barnanna á leikskólanum eru fyrst núna að taka eftir
þvi að maður sé óléttur sem að er kannski ekkert skrýtið því að
þetta er kannski ekkert stærsta kúla ever en fer stækkandi og maður
er ekkert ennþá farinn að kjaga sem betur fer. Forvitnum er
velkomið að kíkja á mann og aldrei að vita nema að maður setji inn
nokkrar bumbumyndir. Var akkúrat að smella af nokkrum í kvöld.
En vonandi eru Fanney og Arndís mín ánægðar núna. Verð svo að
fara að sjá ykkur